dalvíkurbyggð

KF/Dalvík byrjaði með krafti á Reycup

KF/Dalvík mætti Selfoss-4 í U-14 í E-riðli B-liða á Reycup í dag. Leikið var í hjarta Laugardalsins í mildu veðri. Völlurinn var blautur eftir rigningu síðustu vikna í höfuðborginni. KF/Dalvík er með sameiginlegt lið eins og undanfarin ár en aðeins er þetta eina lið á Reycup frá KF/Dalvík í ár. Það voru því nokkrir drengir sem hefðu verið gjaldgengir í U-12, 5. flokkinn hjá liðinu í ár.

Töluverður stærðarmunur var á nokkrum drengjum í liðunum en Selfoss hafði nokkuð hávaxið lið og virkuðu margir þar á eldra árinu í U14.

KF/Dalvík byrjaði af krafti og fengu hornspyrnu eftir fyrstu sóknina. Boltinn kom hár inn á teiginn og skallaði leikmaður KF/Dalvík boltann glæsilega í netið og var staðan orðin 1-0.

Nokkrum mínútum síðar átti KF/Dalvík gott spil og prjónuðu sig í gegnum vörn Selfoss og skoruðu annað mark. Staðan orðin 2-0 og um 5 mínútur liðnar af leiknum.

KF/Dalvík hélt boltanum vel og voru hreyfanlegir og gekk vel að finna góðar sendingar á næsta liðsmann. Um miðjan síðari hálfleik náði KF/Dalvík annari góðri sókn og skoruðu þriðja markið.

Undir lok fyrri hálfleiks fékk KF/Dalvík aukaspyrnu á góðum stað fyrir utan vítateig Selfoss. Leikmaður KF/Dalvík átti gott skot á markið og var markmaðurinn með boltann en missti hann inn, enda völlurinn blautur og skotið fast. Staðan var 4-0 í hálfleik.

KF/Dalvík skoraði fimmta markið í síðari hálfleik, aftur eftir gott gegnum brot, staðan 5-0.

Selfoss náði að minnka muninn með marki beint úr aukaspyrnu, langt utan af velli, en var markmaður KF/Dalvík með boltann en missti hann inn fyrir línuna vegna bleytu og föstu skoti. Staðan 5-1 og nokkrar mínútur eftir.

KF/Dalvík skoraði aftur í næstu sókn eftir gott spil á miðjunni og var staðan orðin 6-1.

Selfoss átti loka markið eftir góða sókn og minnkuðu muninn í 6-2.

KF/Dalvík var sterkara liðið í þessum leik og áttu gott spil og var baráttan og liðsandinn til fyrirmyndar.  Markmaður Selfoss varði oft vel og hvatt sína menn áfram og lét þá heyra það ef þeir voru ekki rétt staðsettir.

Það reyndi ekki mikið á markmann KF/Dalvík í leiknum þar sem Selfoss átti fá færi fyrir utan þessi tvö mörk í síðari hálfleik.

Foreldrar voru til fyrirmyndar á hliðarlínunni og hvöttu liðin áfram.

Lokatölur 6-2 í þessum fjöruga leik.