KF/Dalvík komið í úrslitaleik eftir frábæran sigur í 4. flokki kvenna
KF/Dalvík mætti RKVN í undanúrslitum í Reycup í 4. flokki kvenna. RKVN er sameinað lið frá Reykjanesi og hafa þær úr mörgum stelpum að velja í sitt lið.
KF/Dalvík voru ákveðnar frá byrjun leiks og leiddu 2-0 í fyrri hálfleik. RKVN fékk vítaspyrnu eftir að brotið var á sóknarmanni liðsins innan vítateigs og skoraði liðið úr spyrnunni. Staðan orðin 2-1 og mikil spenna það sem eftir lifði leiks. KF/Dalvík fengu nokkur ágætis færi sem ekki nýttust og eins komst RKVN í nokkrar skyndisóknir. KF/Dalvík hélt út og unnu leikinn verðskuldað 2-1 og eru komnar í úrslitaleikinn.
Úrslitaleikurinn verður á morgun kl. 13:00 gegn Tindastóli á vellinum Hagar sem er fremri gervigrasvöllurinn þar sem gamli Valbjarnavöllur var áður.
Frábær árangur hjá stelpunum á þessu móti.

