Fjallabyggð

KF/Dalvík lék lokaleikinn gegn ÍBV á Reycup

KF/Dalvík í 4. flokki drengja léku lokaleikinn í úrslitakeppninni í E-riðli á Reycup í dag. KF/Dalvík mætti ÍBV-3 í Safamýrinni snemma í morgun. .

ÍBV liðið fór ósigrað í gegnum sinn riðil, unnu Selfoss í fyrsta útslætti, fóru svo í vítaspyrnukeppni á móti Tindastól-2, þar sem Tindastóll sigraði.

KF/Dalvík átti því von á hörku leik gegn ÍBV.  Svo fór að KF/Dalvík strákarnir stóðust prófið og héldu sigurgöngu sinni áfram og unnu leikinn örugglega 1-4. Glæsilegur árangur hjá þessu frábæra liði og framtíðin er björt hjá þessum  strákum.