dalvíkurbyggðFjallabyggð

KF/Dalvík mætti ÍBV í 8 liða úrslitum í 4. flokki karla

KF/Dalvík mætti ÍBV í 8 liða úrslitum í 4. flokki karla á Reycup í morgun. Sigurliðið færi í undanúrslit en tapliðið spilar um 5.-8. sæti síðar í dag.

Eyjastrákarnir voru sterkari í þessum leik og fengu fleiri færi. Svo fór að ÍBV vann 5-0 sigur og fara þeir í undanúrslit. KF/Dalvík mætir liði Vestra í leik um 5.-8. sæti í 4. flokk karla á Reycup. Leikurinn fer fram kl. 17:00 í dag á velli við TBR húsið í Laugardal sem nefnist Álfheimar og er grasvöllur.