dalvíkurbyggðFjallabyggð

KF/Dalvík með tvö lið á Reycup

KF/Dalvík sendir tvö lið á knattspyrnumótið Reycup sem fram fer í Reykjavík 24.-27. júlí. Um er að ræða eitt lið drengjalið í U14 (4. flokkur) sem leika í riðli með Selfoss 4, Þrótti 4 og Val 3. Kvennaliðið er líka U14 (4. flokkur) og er í riðli með ÍR 2, Grótta/Selfoss 2, og HK 2. Drengjaliðið á leik við Val 24. júlí og stúlkurnar eiga tvo leiki, fyrst við HK og svo við Gróttu/Selfoss. Eftir riðlakeppni tekur við útsláttar keppni og aukaleikir.

Flestir leikirnir fara fram í Laugardalnum en nokkrir leikir fara fram í Safamýri, gamla Framvellinum.

Eins og undanfarin ár verður greint frá úrslitum leikja hér á síðunni og reynt verður einnig birta ljósmyndir frá leikjunum.

Foreldrar mega gjarnan senda inn ljósmyndir til birtingar.

Liðin gista í Breiðagerðisskóla í ár.

 

Dagskrá drengja:

Dagskrá stúlkna: