dalvíkurbyggð

KF/Dalvík sigraði Tindastól og vann riðilinn á Reycup

KF/Dalvík mætti Tindastól-2 í 4. flokki karla á Reycup í morgun. Um var að ræða úrslitaleik í riðlinum, en liðin voru bæði með 6 stig og jafna markatölu. Búist var við jöfnum og spennandi leik.

Tindastóll lék í áttina að Glæsibæ í fyrri hálfleik og KF/Dalvík í átt að Laugardalshöllinni. Völlurinn var góður og aðeins blautur. Tindastóll byrjaði með boltann og voru liðin að þreifa fyrir sér fyrstu mínúturnar og fóru varfærnislega af stað.

KF/Dalvík fann fljótt taktinn og sóttu stíft að Tindastól í fyrri hálfleik og voru meira með boltann. Fyrsta markið kom eftir um 5 mínútur þegar Sæþór stakk sér inn fyrir vörnina og náði góðu skoti á markið, stöngin inn, sérlega glæsilegt mark. Staðan 1-0.

KF/Dalvík skoraði aftur eftir þegar um 10 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleik, aftur gott gegnumbrot og skot sem markmaður Tindastóls náði ekki að verja. Staðan 2-0 og KF/Dalvík mun meira með boltann og átti Tindastóll erfitt að komast yfir á vallar helming KF/Dalvík.

Skömmu síðar fékk KF/Dalvík dauðafæri, áttu gott skot í stöngina og út, þarna voru þeir óheppnir að skora ekki.

Eftir um 15 mínútur skoraði KF/Dalvík þriðja markið eftir gott gegnumbrot. Liðið var spila mjög vel og Tindastóll gekk illa að verjast sóknum liðsins í fyrri hálfleik.

Tindastóll fékk dauðafæri eftir um 20 mínútur, sóknarmaður var einn á móti markmanni en skaut rétt framhjá. Fyrsta alvöru færið hjá Stólunum.

Staðan var 3-0 í hálfleik. Einn leikmaður KF/Dalvík var á gulu spjaldi eftir að hann spyrnti boltanum burtu þegar dómarinn hafði flautað áður rangstöðu.

Tindastóll byrjaði seinni hálfleik af krafti, fengu hornspyrnu eftir að markmaður KF/Dalvík náði ekki að sparka boltanum í burtu eftir að varnarmaður sparkaði til baka. Úr horninu kom góður skalli en varnarmaður KF varði á línu. Annar leikmaður KF/Dalvík fékk gult spjald í síðari hálfleik eftir kröftuga tæklingu.

Tindastóll fékk aftur horn eftir um fjórar mínútur í seinni hálfleik, boltinn kom á fjærstöngina og þar var sóknamaður Tindastóls óvaldaður og skoraði gott mark. Staðan 3-1 og enn var nóg eftir af seinni hálfleik.

KF/Dalvík komst í 4-1 eftir eftir snarpa sókn í seinni hálfleik. Tindastóll fékk svo gott færi þegar um 5 mínútur voru eftir af seinni hálfleik boltinn fór framhjá. Skömmu síðar fékk KF/Dalvík einnig gott færi sem nýttist ekki.

Rétt fyrir leikslok fékk Tindastóll aftur dauðafæri, sóknarmaður einn á móti markmanni en boltinn fór framhjá.

Tindastóll átti betri seinni hálfleik og fengu fleiri færi sem nýttust ekki, en KF/Dalvík landaði góðum sigri 4-1 og unnu riðilinn.

KF/Dalvík leikur næst gegn Þrótti-6 kl. 17:00 í dag við völinn við TBR húsið.