KF/Dalvík vann Vestra í hörku leik á Reycup
KF/Dalvík í 4. flokki karla mætti Vestra á Reycup í leik um 5.-8. sætið. Leikurinn var heilt yfir jafn og fengu bæði lið góð færi. KF/Dalvík byrjaði vel og áttu gott skot í slánna og niður strax á upphafsmínútum leiksins og gaf það tóninn. KF/Dalvík spilaði vel og fengu fín færi í fyrri hálfleik. Fyrsta mark leiksins kom snemma og var þá aukaspyrna rétt við miðlínu vallarins og spyrnti varnarmaður KF/Dalvík boltanum fast á fær stöngina þar sem þrír leikmenn liðsins voru og náði einn þeirra boltanum niður og skoraði frábært mark. Frábært að sjá þetta og örugglega vel æft á æfingasvæðinu og var þetta reynt aftur síðar í leiknum.
Vestri fór strax í sókn og fór upp vinstri kantinn og kom góð fyrirgjöf inn í teig þar sem sóknarmaður liðsins var laus og skoraði gott mark. Staðan 1-1 og frábær leikur í gangi.
Það liðu ekki margar mínútur en KF/Dalvík skoraði aftur gott mark eftir frábært spil og leiddu þeir 2-1 í hálfleik.
KF/Dalvík fékk víti í síðari hálfleik þegar boltinn fór greinlega í hönd leikmanns Vestra. KF/Dalvík skoraði úr vítinu og var staðan 3-1. Fleiri mörk voru ekki skoruð en bæði lið áttu góðan leik, spilið gekk vel og nokkuð um góð færi.
KF/Dalvík mætir því Snæfellsnesi í leik um 5.-6. sætið á morgun kl. 11:00 á velli sem heitir Serrano en sá völlur er við Suðurlandsbrautina.

