Kvennalið Dalvíkur/Reynis lék gegn Einherja
Dalvík/Reynir og Einherji mættust í 2. deild kvenna á Vopnafirði. D/R stelpurnar höfðu tvo sigra og jafntefli í síðustu þremur leikjum og gátu með sigri nálgast efstu fjögur liðin. Einherji var með tvö töp og tvö jafntefli fjóra leikina á undan og höfðu aðeins sigrað einn leik í deildinni og voru við botninn.
Það voru heimakonur sem skoruðu fyrsta markið á 23. mínútu og var það Ainhoa Olivera Fernandez en hún er að leika sitt fyrsta tímabil á Íslandi. Hún þurfti að fara af velli skömmu síðar, líklega vegna meiðsla.
Jafnt var í hálfleik. Á 60. mínútu gerði þjálfari D/R þrefalda skiptingu til að freista þess að jafna leikinn. Á 65. mínútu kom jöfnunarmarkið þegar Ragnheiður Sara Steindórsdóttir skoraði, hennar 3ja mark í deildinni í sumar. Staðan 1-1 og nægur tími fyrir fleiri mörk.
Heimakonur náðu inn öðru marki á 77. mínútu þegar Oddný Karólína Hafsteinsdóttir skoraði. Hennar fjórða mark í deildinni í sumar, en hún lék upp yngri flokkana fyrir Þór og Þór/KA en hefur undanfarin ár leikið með Einherja. Hún á einnig nokkra landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
D/R gerði tvær skiptingar til viðbótar en fleiri urðu mörkin ekki og vann Einherji nokkuð óvæntan sigur í þessum leik.
