Langur starfsaldur þrifsveitar Samherja
Hreinlæti er stór og mikilvægur þáttur í fiskvinnsluhúsum Samherja á Dalvík og á Akureyri, enda eru gerðar gríðarlegar kröfur um hreinlæti og gæði á öllum stigum starfseminnar. Þegar vinnslu lýkur í húsunum, taka við öflugar sveitir sem þrífa og hreinsa húsin samkvæmt ákveðnum verkferlum. Þetta kemur fram í frétt á vef Samherja.
Sveinn Haraldsson er verkstjóri þrifasveitar vinnsluhússins á Dalvík. Hann segir að níu starfsmenn sveitarinnar hefjist handa við þrif strax að lokinni vinnslu í húsinu. Hann segir að vélarnar séu alltaf að þróast til betri vegar, svo sem í tengslum við þrif og alla umgengni.
„Við þrífum samkvæmt ákveðnum verkferlum og hefjumst handa þegar vinnslu er að ljúka, oftast klukkan fjögur á daginn. Hver og einn í sveitinni er með sitt afmarkaða svæði og hlutverk, þannig náum við að skila góðu verki eins og lagt er upp með. Starfið getur vissulega verið nokkuð líkamlega erfitt en á móti kemur að þetta er afskaplega þéttur og samstilltur hópur, sem þekkir vel húsnæðið og allan tækjakost.“
Starfsaldur í þrifasveitinni er hár. Sveinn hefur verið í þrifasveitinni í tuttugu ár.
Heimild og myndir: samherji.is

