dalvíkurbyggð

Laus kennarastaða í Árskógarskóla

Vegna fjölgunar í nemendahópnum í Árskógarskóla er laus staða umsjónarkennara sem getur líka kennt verkgreinar (100% staða). Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.  Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2018.

Árskógarskóli er leik- og grunnskóli sem tók til starfa 1. ágúst 2012. Í skólanum eru 40 börn frá 9 mánaða aldri til og með miðstigi grunnskóla. Hér starfar fjölbreyttur og samheldinn hópur í 7 stöðugildum.  Árskógarskóli er staðsettur við þjóðveginn, í Árskógi, 12 km frá Dalvík og 34 km frá Akureyri.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Grunnskólakennarapróf eða önnur menntun sem nýtist í starfið
  • Metnaður til að vinna eftir fjölbreyttum og árangursríkum kennsluaðferðum
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að vinna í teymi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Hefur virðingu, jákvæðni og umhyggju að leiðarljósi

Nánar um skólann á heimasíðu: http://www.dalvikurbyggd.is/arskogarskoli/

Upplýsingar gefur Jónína Garðarsdóttir skólastjóri í síma 460-4971, 899-4933.

Senda skal umsókn og ferilskrá á netfangið jonina.gardars@dalvikurbyggd.is og verður móttaka umsókna staðfest.