dalvíkurbyggð

Laus störf í Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar

Dalvíkurbyggðar hefur auglýst laus störf nemenda vinnuskóla. Öll ungmenni sem stunda nám í grunnskólum Dalvíkurbyggðar og eru fædd á árunum 2010, 2011 og 2012 geta sótt um, einnig ef nemandi á a.m.k. annað foreldri með lögheimili í Dalvíkurbyggð.

Vinnuskólinn mun einnig bjóða upp á störf fyrir ungmenni fædd árin 2009 og 2008.

Vinnuskólinn hefst mánudaginn 8. júní og mun starfa í 8-10 vikur, mismunandi langt eftir aldri nemenda.

Áætlaður starfstími er eftirfarandi:

Árgangur 2010: 10 vikur. 8:30 – 15:30 – 7 klst. á dag.
Árgangur 2011: 10 vikur. 8:30 – 15:30 – 7 klst. á dag.
Árgangur 2012: 8 vikur. 8:30 – 14:00 – 5,5 klst. á dag.

Umsóknarfrestur er til og með 20. maí nk. Sótt er um störfin í gegnum þjónustugátt Dalvíkurbyggðar með rafrænum skilríkjum.

Vinnuskólinn er fyrst og fremst skóli þar sem nemendur fá að stíga sín fyrstu skref í starfi undir leiðsögn og með stuðningi verkstjóra, flokksstjóra og eldri starfsmanna Vinnuskólans. Markmið Vinnuskólans er að undirbúa unglingana í vinnu í öruggu umhverfi áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Lögð er áhersla á að nemendur virði samskiptareglur, sýni góða ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart starfi og umhverfi.