dalvíkurbyggð

Leggja til að gjaldsskrá sorphirðu hækki um 5%

Framkvæmdaráð Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt tillögu um að gjaldskrá sorphirðu í Dalvíkurbyggð hækki um 5% milli áranna 2026 og 2027 til að koma til móts við vísitölutengdar hækkanir á þjónustusamningi vegna úrgangsþjónustu.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar á eftir að taka málið fyrir.

Núverandi gjaldskrá fyrir sorphirðu í Dalvíkurbyggð:

Sorphirðugjaldið og fyrirkomulag móttöku á gámasvæði á Dalvík er sem hér greinir:

  1. Íbúðir, sorphirðugjald, 76.190 kr. sem skiptist í fast gjald 36.281 kr. og tunnugjald 39.909 kr.
  2. Frístundahús, fast gjald 36.281 kr.

 

Sorphirðugjald er lagt á hverja íbúð í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar og er það innheimt með fasteignagjöldum með sömu gjalddögum og fasteignagjöld. Sorphirðugjaldið skiptist í fast gjald annars vegar og tunnugjald hins vegar. Frístundahús greiða einungis fast gjald sem innheimt er með sama hætti. Fasta gjaldinu er ætlað að standa straum af sameiginlegum kostnaði við sorphirðuna en tunnugjaldinu að standa undir kostnaði fyrir þjónustu við tæmingu á tunnum við heimahús.