Leikfélag Dalvíkur frumsýnir
Leikfélag Dalvíkur frumsýnir á verkið “Now and then” eða Fram og aftur eftir Sean Grennan í íslenskri þýðingu og leikstjórn Dominique Sigrúnardóttur, en frumsýning er föstudaginn 21. mars kl. 20:00.
Verkið fjallar um ungan mann sem vinnur á bar á Dalvík árið 1986. Eitt kvöldið fær hann óvænta heimsókn frá eldri manni sem býður honum peninga upphæð sem hann á erfitt með að neita, fyrir það eitt að fá að sitja eftir lokun og fá sér drykk. Tilboðið hljómar vel en eftir því sem líður á kvöldið fara grunsamlegir hlutir að koma í ljós og óvæntur gestur flækir hlutina enn fremur.
Sýnt er í Ungó, leikhúsinu á Dalvík að Hafnarbraut 29.
Miðaverð: 4.500 kr
Hópapantanir fyrir 10 manns eða fleiri þurfa að berast í síma 868-9706.
