Leikskólinn Krílakot í Dalvíkurbyggð 40 ára
Þann 9. september síðastliðin voru 40 ár síðan leikskólinn Krílakot í Dalvíkurbyggð hóf göngu sína. Leikskólinn hefur tekið þó nokkrum stakkaskiptum í gegnum árin en í dag samanstendur hann af fimm deildum, Skýjaborg, Sólkoti, Mánakoti, Kátakoti og Hólakoti. Boðið er upp á 4 – 8 ½ tíma vistun og tekur leikskólinn við börnum þegar fæðingarorlofi lýkur, ef kostur er, til 6 ára aldurs. Alla jafna geta dvalið í kringum 100 börn í leikskólanum og starfsmenn eru um og yfir 30 talsins.
Starfsmenn og nemendur leikskólans fögnuðu afmælisdeginum í sameiningu, drógu fána á loft, fengu sér pizzu í hádegismatinn og gæddu sér á afmælisköku.