Lokahóf Knattspyrnudeildar Dalvíkur/Reynis
Lokahóf Knattspyrnudeildar Dalvíkur/Reynis var haldið um helgina með þar sem um 80 manns komu saman.
Þar voru samankomnir leikmenn og þjálfarar meistaraflokks karla og kvenna, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar og velunnarar.
Leikmenn ársins voru verðlaunaðir og Bróa bikarinn afhentur. Viðurkenningar voru veittar til þeirra sem spiluðu sinn fyrsta leik fyrir félagið. Óskar Bragason aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hefur tilkynnt að hann hyggist hætta í þjálfun og fékk hann sérstakar kveðjur frá leikmönnum liðsins.
Mfl kvk:
Leikmaður leikmannana: Arna Kristinsdóttir
Leikmaður ársins: Helga María Viðarsdóttir
Markahæst: Erika Rakel Egilsdóttir
Mfl kk:
Leikmaður leikmannana: Þröstur Mikael Jónasson
Leikmaður ársins: Gunnlaugur Rafn Ingvarsson
Markahæstur: Áki Sölvason
Bróa bikarinn: Viktor Daði Sævaldsson
150 leikja klúbburinn: Gunnlaugur Rafn Ingvarsson
200 leikja klúbburinn: Rúnar Helgi Björnsson

