Messað í Hríseyjarkirkju og Dalvíkurkirkju
Vetrarstarfið hjá Dalvíkurprestakalli er að hefjast. Sunnudaginn 20. september verður messað bæði í Hríseyjarkirkju og Dalvíkurkirkju. Sunnudagaskólinn fer einnig af stað kl. 10:00 í Dalvíkurkirkju. Fjölskylduguðsþjónusta í Hríseyjarkirkju kl.14:00 og kvöldguðsþjónusta í Dalvíkurkirkju kl. 20:00.
Fermingarbörn vetrarins og forráðamenn þeirra eru sérstaklega boðin velkomin í Dalvíkurkirkju þar sem einnig fer fram skráning í fermingarfræðsluna.
