dalvíkurbyggð

Miðvikudags ganga Ferðafélags Svarfdæla

Ferðafélag Svarfdæla býður upp á göngu í dag, miðvikudaginn 17. júlí, kl 17:15. Farið verður á einkabílum frá Dalvíkurkirkju. Ekið að Sauðanesi á Upsaströnd. Gengið þaðan upp í hlíðina meðfram Víkurlæk upp í dalverpið Víkurdal sem er í um 300 m hæð yfir sjó. Gangan tekur um 2-3 klukkustundir.