dalvíkurbyggð

Nemendur Dalvíkurskóla heimsóttu Menntaskólann á Tröllaskaga

Nemendur úr 10. bekk Dalvíkurskóla heimsóttu Menntaskólann á Tröllaskaga  í vikunni og kynntu sér hvernig náminu er háttað í skólanum og hvernig lífið gengur fyrir sig. Námsráðgjafi skólans, Hólmar Hákon, bauð þessa tilvonandi framhaldsskólanema velkomna og flutti stutta kynningu áður en hópnum var skipt upp í smærri einingar sem fóru á milli stöðva í skólahúsinu.

Þeirra biðu ýmis verkefni og kynningar til að fá innlit í skólastarfið. Fulltrúar nemendaráðs sögðu frá félagsstarfi nemenda, Inga Eiríksdóttir stýrði ratleik þar sem gestirnir fóru um skólahúsið og skoðuðu ýmis tæki og tól sem skólinn hefur yfir að ráða, Ida Semey sá um klippimyndagerð þar sem viðfangsefnið var hamingja í tilefni af alþjóða hamingjudeginum sem var í vikunni, nemendur skólans tóku á móti hópunum í tölvustofunni þar sem var í boði að fara í tölvuleiki og prófa sýndarveruleikagræjur. Hólmar Hákon fór yfir skipulag námsins og skólastarfsins á síðustu stöðinni.

Að loknu hópastarfinu var boðið upp á pizzuveislu.