dalvíkurbyggð

Nikola Kristinn samdi við Dalvík/Reyni

Miðjumaðurinn Nikola Kristinn hefur samið við Dalvík/Reyni og mun spila með liðinu út leiktíðina hið minnsta. Hann kemur frá KFA en er uppalinn hjá Þór. Hann hefur einnig leikið með KF en hann lék 18 leiki árið 2024 með Dalvík/Reyni og þekkir því aðstæður vel.

Nikola er fæddur árið 2000 og á 189 KSÍ leiki með þessum liðum og hefur skorað 19 mörk.