Ný bók varpar ljósi á Akureyrarveikina
Óskar Þór Halldórsson kynnti nýja bók sína um Akureyrarveikina í húsakynnum Verkmenntaskólans á Akureyri í lok ágúst mánaðar. Óskar Þór en einnig stuðingsfulltrúi við skólann.
Á vef VMA.is var eftirfarandi texti birtur:
„Ég er mjög ánægður með þau viðbrögð sem bókin fær og hún hefur nú þegar vakið töluverða athygli. Mér fannst að þessum kafla í sögu Akureyrar hefðu ekki verið gerð nægjanleg skil og því fór ég af stað. Ég sé ekki eftir því, þetta hefur verið afar áhugavert ferðalag sem hefur leitt mig inn á slóðir sem mér voru áður óþekktar.
Ekki aðeins var Akureyrarveikin á Akureyri, hún dreifðist víða um land þennan vetur, 1948-1949, hlutfallslega fæst tilfelli voru á Austurlandi. Og síðan gerðist það sex árum síðar að annar faraldur af Akureyrarveikinni stakk sér niður á Vestfjörðum og í Þistilfirði. Kannski má segja að þessi bók komi út á hárréttum tíma því það kemur í ljós að mikil líkindi eru með einkennum fólks með Akureyrarveikina og þeim einkennum sem fólk með ME-sjúkdóminn fólk sem glímir við langtíma eftirköst COVID 19.
Ég studdist við hinar ýmsu rituðu heimildir, bæði íslenskar og erlendar, en bókina hefði ég nokkuð örugglega ekki getað skrifað nema vegna þess að ég talaði við fjölda fólks um allt land sem veiktist á sínum tíma og afkomendur fólks sem veiktist. Allar þessar sögur, margar þeirra átakanlegar, varpa nýju ljósi á þennan mikla og alvarlega faraldur. Sem betur fer náðu margir sér upp úr veikindunum en aðrir glímdu við afleiðingar veikinnar til æviloka. Þetta voru alvarleg veikindi og margir þeirra sem veiktust voru rúmfastir vikum og jafnvel mánuðum saman,“ segir Óskar Þór.

