dalvíkurbyggð

Ný sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar tekin til starfa

Eftirtaldir skipa sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2026-2030 talið frá vinstri; Börkur Þór Ottósson (A), Magni Þór Óskarsson, 2. varaforseti (K), Monika Margrét Stefánsdóttir, forseti sveitarstjórnar (B), Helgi Einarsson (K), Benedikt Snær Magnússon, 1. varaforseti (D), Katrín Sif Ingvarsdóttir (K), Bessi Ragúels Víðisson (D) og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri.

Úrslit kosninga:

A-listi Byggðarlistinn hlaut 134 atkvæði, 12,5% hlutfall atkvæða og 1 fulltrúa kjörinn.
B-listi Framsóknar og óháðra hlaut 165 atkvæði, 15,4% hlutfall atkvæða og 1 fulltrúa kjörinn.
D-listi Sjálfstæðisflokks hlaut 257 atkvæði, 24,1% hlutfall atkvæða og 2 fulltrúa kjörna.
K-listi Dalvíkurbyggðar hlaut 512 atkvæði, 47,9% hlutfall atkvæða og 3 fulltrúa kjörna.

Á kjörskrá voru 1.475, greidd atkvæði voru 1.103 og kosningaþátttaka því 74,8%.
Gildir atkvæðaseðlar voru 1.068 eða 96,8%. Auðir seðlar voru 27 eða 2,4% af greiddum atkvæðum. Ógildir seðlar (en ekki auðir) voru 8 eða 0,7% af greiddum atkvæðum.