dalvíkurbyggð

Nýr aðstoðarþjálfari Dalvíkur/Reynis

Jóhann Hilmar Hreiðarsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Dalvíkur/Reynis fyrir komandi tímabil og hefur hann nú þegar hafið störf.
Jóhann hefur undanfarin ár þjálfað hjá Val og KH, en þar var hann þjálfari 2. flokk karla ásamt afreksakademíu félagsins. Hann er fæddur árið 1979 og lék 215 leiki í meistaraflokki og skoraði 54 mörk í öllu deildum. Í deildarbikarkeppnum lék hann 56 leiki og skoraði 11 mörk.

Jóhann lék rúmlega 115 leiki fyrir Dalvík/Reyni og skorað í þeim í 40 mörk á sínum ferli sem leikmaður. Hann lék einnig 10 leiki fyrir yngri landslið Íslands. Þar fyrir utan lék hann með Val í efstu deild, ásamt Þrótti, Víking Reykjavík og Augnablik.
Jóhann var þjálfari Dalvíkur/Reynis tímabilið 2009 og svo aðstoðarþjálfari tímabilin 2010, 2011, 2014 & 2015.

Jóhann kemur inn í þjálfarateymið við hlið Óskars Bragasonar sem er að fara inn í sitt annað tímabil með liðið.

Mynd og heimild: dalviksport.is