Nýr eldaskáli í Vaglaskógi
Nýr eldaskáli í Vaglaskógi var formlega tekinn í notkun föstudaginn 26. júní. Fjöldi manns lagði leið sína í Vaglaskóg og kveikt var upp í nýja eldaskálanum sem verið hefur í smíðum í skóginum undanfarin misseri.
„Með eldaskálanum opnast nýir möguleikar á nýtingu skógarins, ekki eingöngu fyrir tjaldgesti heldur alla gesti sem sækja Vaglaskóg heim,“ segir Helga Ösp Jónsdóttir skógarvörður, en hún tók nýlega við keflinu af Rúnari Ísleifssyni sem hefur starfað síðan 2014.
Starfsfólk skógarvarðarins á Norðurlandi og fleiri úr starfsliði stofnunarinnar á Norðurlandi færðu Rúnari gjafir og þakkir í tilefni tímamótanna en það gerðu líka fulltrúar þingeyskra skógræktarfélaga og skógarbænda. Þá var Helga Ösp boðin velkomin og síðan gafst tækifæri til að hittast, spjalla og njóta kosta nýja eldaskálans þar sem ketilkaffi var hitað yfir eldi, grillaðir sykurpúðar, ástarpungar og kleinur í boði og hægt að skoða aðstöðuna nýju.
Byggingin er öll reist úr íslensku timbri. Sitkagreni úr Haukadal er að mestu í burðarvirki þess og rauðgreni úr sama skógi í klæðningu á þaki. Klæðning á stöfnum skálans og salernishúsi er úr lerki úr Fnjóskadal og eru snyrtingar líka fallega klæddar lerki að innan. Eldaskálinn bæti mjög aðstöðu gesta í Vaglaskógi allan ársins hring með snyrtingum, skjóli og aðstöðu til samveru.
Auk tækifæranna sem eldaskálinn veiti til fjölbreyttari notkunar Vaglaskógar lítur Helga björtum augum til þess sem fram undan er í skógarnytjum. Timburauðlindin sé farin að sýna sig og spennandi verði að takast á við að koma henni á framfæri og vinna að sjálfbærum timburnytjum á komandi árum.
