Nýtt íbúðasvæði vestan Böggvisbrautar á Dalvík fyrir 65 íbúðir
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kynnir drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020. Breytingin tekur til svæðis sem merkt er ÍB-202 í aðalskipulagi og felst í að svæðið er stækkað um 1,3 ha suður fyrir vegslóða að Böggvisdal.
Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að á svæðinu rísi íbúðarbyggð með allt að 65 íbúðum í eins til þriggja hæða húsum, þ.e. einbýlis-, fjölbýlis-, par-, rað- og keðjuhúsum.
Lögð verður áhersla á gott aðgengi svæðisins með öruggum gönguleiðum, haganlega staðsetningu íbúðarhúsa m.t.t. skjóls og birtu og blágrænar ofanvatnslausnir.
