Ofsaakstur á Norðurlandi
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur verið með öflugt umferðareftirlit síðustu daga en þó nokkuð margir eru á faraldsfæti um páskana. Skráð voru 34 umferðalagabrot fyrstu dagana í apríl, þar af eru 29 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og einn fyrir að aka undir áhrifum áfengis.
Þá var einn ökumaður tekinn á 137 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km/klst en sá ökumaður á von á sekt upp á 150.000,- krónur og 3 punkta í ökuferilsskrá.