dalvíkurbyggð

Olís á Dalvík lokar 1. nóvember 2026

Ákveðið hefur verið að loka þjónustustöð Olís á Dalvík frá og með 1. nóvember næstkomandi.
Þjónustustöðin á Dalvík hefur verið hluti af samfélaginu um árabil og hefur Olís og ÓB tekið virkan þátt í stuðning við samfélagið meðal annars með því að styðja ríkulega við skíðasvæði og knattspyrnudeild Dalvíkur.
Rekstur stöðvarinnar hefur verið krefjandi um nokkurt skeið og rekstrarforsendur ekki verið nægilega sterkar til lengri tíma. Að vel ígrunduðu máli hefur því verið tekin sú erfiða ákvörðun að hætta rekstri þjónustustöðvarinnar.
Olís mun áfram vera með eldsneytissölu á Dalvík og verða dælurnar því á sínum stað eftir lokun þjónustustöðvarinnar.  Jafnframt er unnið að því að finna leigjanda að húsnæðinu og vonum við að þar geti áfram verið starfsemi sem nýtist samfélaginu á Dalvík. Ef það gengur eftir er fyrirhugað að halda áfram með  gassölu, ennþá verður í boði þvottaplan, ryksuga og loftdæla.
Það sem vegur þyngst í þessari ákvörðun eru áhrifin sem hún hefur á samstarfsfólk okkar á Dalvík. Þar starfar fólk sem hefur lagt sitt af mörkum fyrir Olís og þjónustað viðskiptavini okkar af alúð og metnaði.
Við viljum færa starfsfólkinu okkar bestu þakkir fyrir þeirra framlag, tryggð og störf í þágu Olís og viðskiptavina okkar á svæðinu. Við þökkum viðskiptavinum okkar á Dalvík kærlega fyrir viðskiptin og samfylgdina í gegnum árin.
Aðsend tilkynning.