Opinn upplýsingafundur fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar
Sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar hefur boðað til opins upplýsingafundar fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar vegna Covid-19 á morgun, mánudag, kl. 17:00.
Fundurinn fer fram í fjarfundi og kemur hlekkur til að skrá sig inn á fundinn á heimasíðu Dalvíkurbyggðar og viðburður á facebook á morgun, mánudag, kringum hádegi.
Á fundinum verða veittar upplýsingar um covid og stöðuna í Dalvíkurbyggð af hendi sveitarfélagsins, heilsugæslu, lögreglu og aðgerðastjórn almannavarna.
Íbúar geta sent inn spurningar fyrir fundinn á netfangið irish@dalvikurbyggd.is