dalvíkurbyggð

Organistinn í Dalvíkurkirkju kveður og nýr tekur við

Páll Barna Szabó eða Palli organisti eins og hann er kallaður kveður Dalvíkurkirkju á sunnudaginn 17. september kl. 11.00 eftir margra ára farsælt starf. 

Kórinn syngur undir hans stjórn næstkomandi sunnudag.   Nýi organistinn, Þórður Sigurðarson verður meðal kórfélaga á sunnudaginn kemur.

Að lokinni guðþjónustu verður súpa og samfélag í safnaðarheimilinu og munu sr. Erla Björk og sr. Oddur Bjarni leiða þjónustuna.