Ráðherraheimsókn í Dalvíkurbyggð
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfisráðherra, heimsótti Dalvíkurbyggð í dag. Guðmundur mætti ásamt aðstoðarmanni sínum, Sigríði Halldórsdóttur og Birni Helga Barkarsyni, sérfræðingi hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, á nýja áningastaðinn við Hrísatjörn og fékk þaðan leiðsögn um Friðland Svarfdæla.
Á áningarstaðnum tóku á móti ráðherranum, Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, Steinþór Björnsson, deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar, Davíð Örvar Hansson, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun og Hjörleifur Hjartarson, landvörður í Friðlandi Svarfdæla.
Frá þessu var greint á vef Dalvíkurbyggðar.