Ráðin í starf þjónustu- og upplýsingafulltrúa hjá Dalvíkurbyggð
Þann 26. febrúar síðastliðinn rann út umsóknarfrestur um auglýst starf þjónustu- og upplýsingafulltrúa hjá sveitarfélaginu Dalvíkurbyggð. Af þeim umsækjendum sem sóttu um starfið þá var Íris Hauksdóttir metin hæfust, en alls bárust 21 umsókn um starfið. Frá þessu er greint á vef Dalvíkurbyggðar.
Íris er með B. Sc. próf í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst. Íris hefur töluverða reynslu af þjónustustörfum, upplýsingagjöf, kynningarmálum og þekkingu á opinberri stjórnsýslu úr störfum sínum hjá Landsbankanum, Einingu- Iðju, sem sviðsstjóri húsnæðissviðs hjá Háskólanum á Bifröst og úr þátttöku sinni í nefndarstörfum og sveitarstjórnarmálum í Dalvíkurbyggð.