dalvíkurbyggð

Ræða sumarvinnu fyrir 17 ára ungmenni í Dalvíkurbyggð

Staða 17 ára ungmenna er varðar sumarvinnu á vegum Dalvíkurbyggðar var rædd á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs í vikunni. En sem stendur virðist ekki vera sem að Dalvíkurbyggð bjóði upp á vinnu fyrir 17 ára ungmenni í ár.
Íþrótta- og æskulýðsráð Dalvíkurbyggðar samþykkti á fundinum að boðið yrði upp á sumarvinnu fyrir 17 ára börn í Dalvíkurbyggð í sumar.
Gísli Bjarnason sviðsstjóri var falið að skila tillögu til sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar.