Rafrænir fundir hjá Einingu-Iðju
Vert er að minna á að Eining-Iðja mun halda þrjá rafræna fundi dagana 25.-27. janúar fyrir félagsmenn sem búa í Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, í Hrísey og á Grenivík. Allir fundirnar hefjast kl. 18:00. Fundirnir munu fara fram á Microsoft Teams og þurfa þeir sem ætla að mæta að skrá sig á viðkomandi fund, svo hægt verði að senda hlekk á fundinn.
Fundirnir verða túlkaðir á pólsku.
Fundardagar:
- Þriðjudagur 25. janúar kl. 18:00
- Hrísey og Dalvík – Skráning á fundinn
- Miðvikudagur 26. janúar kl. 18:00
- Fjallabyggð – Skráning á fundinn
- Fimmtudagur 27. janúar kl. 18:00
- Grenivík – Skráning á fundinn
Dagskrá:
- Undirbúningur kjarasamninga.
- Ný Gallup könnun félagsins,
- Önnur mál.