Rannsaka stórfellda líkamsárás á Akureyri – tveir handteknir
Lögreglan vinnur að rannsókn á stórfelldri líkamsárás sem átti sér stað í heimahúsi á Akureyri.
Aðfaranótt föstudagsins 10. apríl leitaði maður á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Maðurinn bar stunguáverka og þurfti hann að undirgangast skurðaðgerð þar sem gert var að sárum hans. Maðurinn er ekki í lífshættu.
Tveir aðilar voru handteknir grunaðir um aðild að málinu. Í dag úrskurðaði héraðsdómur Norðurlands eystra aðilana tvo í gæsluvarðhald í viku.
Rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og naut aðstoðar tæknideildar LRH við vettvangsrannsókn og sérsveitar RLS við handtökur. Til rannsóknar er hvort um tilraun til manndráps sé að ræða.
