Röskun á flugi frá Keflavíkurflugvelli
Vegna veðurs verður röskun á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli frá miðnætti að kvöldi sunnudagsins 6. febrúar og fram að hádegi mánudaginn 7. febrúar. Veðurspá gerir ráð fyrir ofsaveðri, miklum vindi og mikilli úrkomu líklegast að mestu í formi snjós. Veðrið gengur yfir nær allt landið og getur einnig haft áhrif á innanlandsflug.
Farþegar eru hvattir til að fylgjast með nýjustu upplýsingum um flugtíma á vef Keflavíkurflugvallar eða hjá viðkomandi flugfélögum. Hægt er að skrá sig fyrir flugtilkynningum vegna komu eða brottfara á vef Keflavíkurflugvallar og fá þær tilkynningar á Messenger, Twitter eða með tölvupósti.
