Samherji kynnti starfsemina á kynningarbás í Starfamessu
Hátt í eitt þúsund nemendur 9. og 10. bekk grunnskóla á Eyjafjarðarsvæðinu auk nemenda í framhaldsskólum og Háskólanum á Akureyri sóttu Starfamessu 2025 sem haldin var í Háskólanum á Akureyri síðastliðinn fimmtudag.
Samherji var með kynningarbás og starfsmenn kynntu starfsemi félagsins ásamt náms- og starfsmöguleikum í sjávarútvegi.
Þetta var í sjöunda sinn sem starfamessa er haldin af náms- og starfsráðgjöfum grunnskólanna á Akureyri í samstarfi við HA og SSNE. Markmið hennar er að kynna fjölbreytt störf og veita nemendum betri innsýn í framtíðarmöguleika sína.
