dalvíkurbyggð

Samherji stofnar átakssjóðinn Samheldni til að auka og bæta þjónustu fyrir fólk í fíknivanda

Samherji stendur að stofnun nýs átakssjóðs sem fengið hefur nafnið Samheldni. Sjóðnum er ætlað að standa fyrir stórfelldu átaki í innviðafjárfestingum hjá þeim aðilum sem sinna meðferðarúrræðum fyrir fíknisjúka á Íslandi.

Samherji mun leggja fram 20 milljónir á ári á næstu fimm árum.

Stefnt er að því að fá atvinnulífið allt til liðs við verkefnið svo sjóðurinn geti úthlutað yfir 300 milljónum króna til þriggja bráðnauðsynlegra átaksverkefna.

Samheldni hefur þegar valið þrjú stór og afar mikilvæg verkefni sem munu njóta stuðnings úr sjóðnum með það að markmiði að gjörbreyta aðstöðu og þjónustu við fólk í fíknivanda:

  • SÁÁ – Stuðningur við fjölskyldur og ungmenni: Ráðist verður í að bæta verulega umgjörðina í kringum fjölskyldur þar sem börn eða ungmenni glíma við fíknivanda. Með betri umgjörð og skjótri aðstoð við fjölskyldur er hægt að hafa afgerandi og jákvæð áhrif á framtíð þessara ungmenna.
  • Hlaðgerðarkot – Smáhýsi til sjálfstæðrar búsetu: Bætt verður þjónusta við einstaklinga sem hafa misst, eða aldrei öðlast, getu til að búa sjálfstætt. Reist verða smáhýsi í landi Hlaðgerðarkots þar sem fólk sem lokið hefur meðferð getur flutt inn, haldið sitt heimili og fengið áframhaldandi stuðning frá meðferðarstöðinni áður en haldið er að fullu út í lífið. Við köllum þessi heimili Brú út í lífið.
  • Meðferðarheimilið Krýsuvík – Ný álma og 20 ný pláss: Reist verður ný álma við meðferðarheimilið sem fjölgar gistiplássum um 20 og er það veruleg stækkun. Sem stendur eru yfir 150 manns á biðlista eftir að komast að í meðferð í Krýsuvík.

Stjórn Samheldni

Stjórn samtakanna skipa Anna María Kristinsdóttir, mannauðsstjóri Samherja, Einar Logi Vignisson, framkvæmdastjóri RÚV sölu, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri ÚA, og Valgeir Magnússon, stjórnarformaður PiparsTBWA, sem verður jafnframt stjórnarformaður samtakanna.
Varamaður er Marta María Winkel Jónasdóttir.

Söfnunarráð Samheldni

Baldvin Þorsteinsson
Einar Logi Vignisson
Svanhildur Þórsteinsdóttir
Patricia Bono
Björgvin Páll Gústavsson
Helen Breiðfjörð
Valgeir Magnússon

 

Nánar má lesa á vef Samherja.