Akureyri

Samtök Atvinnulífsins hefja nýtt starfsár með hringferð um landið

Samtök atvinnulífsins hefja nýtt starfsár með áherslu á útflutningsgreinar og efna til hringferðar um landið í því tilefni. Samtökin halda vinnufund í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á morgun, þann 5. júní, þar sem forsvarsfólk fyrirtækja og aðrir áhugasamir eru boðnir velkomnir.

Á fundinum verður fjallað um helstu áskoranir fyrirtækja, hvernig stjórnvöld geti skapað aukin tækifæri og leiðir til að auka útflutningstekjur Íslands. Fundargestir fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka þátt í samtali um framtíð útflutningsgreina og lífsgæða í landinu.

Húsið opnar kl. 11:30 með hádegisverði fyrir gesti og hefst fundurinn sjálfur kl. 12:00.

Hægt er að skrá sig á heimasíðu samtakanna.