dalvíkurbyggðFjallabyggð

Setja upp nýjar aksturshurðir í Múlagöng

Næstkomandi mánudags- og þriðjudagskvöld, 7. og 8. september, verður unnið við uppsetningu nýrra aksturshurða í gangnamunnum Múlaganga. Umferðartafir verða frá kl. 19:00 til miðnættis og umferð hleypt í gegn eftir því sem vinna leyfir.

Frá miðnætti til kl. 04:00 verða göngin lokuð allri umferð báðar næturnar. Eftir kl. 04:00 verður umferð hleypt í gegn eftir því sem vinna leyfir.