Síðustu skólaslit Árskógsskóla 4. júní
Skólaslit Árskógsskóla í Dalvíkurbyggð fara fram fimmtudaginn 4. júní kl. 17:00 í Félagsheimilinu í Árskógi og eru allir velkomnir að vera viðstaddir.
Að þessu sinni bera skólaslitin sérstakan svip, þar sem þau marka lok mikilvægs kafla í sögu Dalvíkurbyggðar. Um er að ræða síðustu skólaslit Árskógsskóla og verður því viðburðurinn bæði hátíðlegur og sögulegur.
