Siglufjarðarvegur á óvissustigi og Öxnadalsheiði lokuð í dag
Vegurinn um Öxnadalsheiði er lokaður og mun ekki opna aftur í dag. Óvissustig verður á Siglufjarðarvegi frá kl. 16:00 í dag 5. febrúar til kl. 17:00 á morgun 6. febrúar og getur því lokað með stuttum fyrirvara. Óvissustig verður á Ólafsfjarðarmúla frá kl. 15:00 í dag og getur því lokað með stuttum fyrirvara.
