Sjö nýsköpunarteymi af Norðurlandi hafa verið valin í Startup Storm
Sjö nýsköpunarteymi af Norðurlandi hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðalinn Startup Storm sem hefst 4. október 2023. Þetta er í þriðja sinn sem Norðanátt heldur viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á Norðurlandi.
Startup Stormur er sjö vikna viðskiptahraðall fyrir græn verkefni á Norðurlandi. Dagskráin er hönnuð með þarfir þátttakenda í huga en á þessu sjö vikna tímabili munu teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur og stjórnendur fyrirtækja frá öllu landinu, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.
Hraðallinn er frjór vettvangur til að þróa hugmyndir sínar og vörur, læra um rekstur fyrirtækja, markaðssetningu, undirbúa fjármögnun og margt fleira. Markmiðið er að hjálpa teymunum að vaxa hratt á þessum sjö vikum og á þeirra forsendum.
Í ár eru þrjú fyrirtæki frá Norðurlandi eystra sem taka þátt og fjögur frá Norðurlandi vestra.
Þátttakendur í Startup Stormur 2023:
- 3D Lausnir – Hringrása steypa og þrívíddarprentun.
- Vallhumall – Gamalkunn íslensk lækningajurt, sem hér fær plantan nýtt hlutverk sem bragðefni í matvælaframleiðslu.Rækta microfarm – Minnkum kolefnisspor og drögum úr innflutningi og matarsóun – Rækta Microfarm er umhverfisvæn framleiðsla á grænsprettum, sælkerasveppum og hampblómum.
- Ró heilsa – Hampurinn heillaði okkur og hvað hann getur gert, við fórum því af stað með Ró CBD.
- Ísponica – Ræktun grænmetis og kryddjurta með aquaponics (afrennsli fiskeldis) lóðréttri búskap. Markmiðið er að rækta mat innandyra, allt árið um kring með áherslu á sjálfbæra framleiðslu.
- Sigló Sea – Sjálfbær sjávarþangsuppskera og kræklingarækt og samfélagsleg þróun ferðaþjónustu.
- Kvörn – Kvörn Kaffibrennsla í Skagafirði, nýbrennt og ferskara kaffi.

