Skíðafélag Dalvíkur 50 ára í haust
50 ár verða frá stofnun Skíðafélags Dalvíkur í haust, en félagið var stofnað 11. nóvember árið 1972. Það var mikið hugsjónafólk sem tók sig saman og stofnaði félagið í kjölfarið á auknum áhuga á skíðaíþróttinni á Dalvík. Þetta fólk stóð íströngu við að búa félaginu aðstöðu til æfinga og almennrar skíðaiðkunnar í Böggvisstaðafjalli á þessum árum.
Undirbúningur fyrir afmælið er hafinn og hefur verið ákveðið að bjóða til veislu í Menningarhúsinu Bergi á þessum tímamótum annaðhvort 11. eða 12. nóvember í haust.
Einnig hefur verið ákveðið að skrifa sögu félagsins og gefa út í formi tímarits. Óskar Þór Halldórsson hefur tekið að sér að vinna verkið og hefur hann síðustu mánuði verið að safna að sér efni. Hann hefur tekið viðtöl við marga sem komu að stofnun félagsins og þá sem hafa starfað með því í mörg ár. Þá er einnig verið að safna ljósmyndum í tímaritið.
Frá þessu var fyrst greint á vef Skíðafélags Dalvíkur.
