Skíðafélag Dalvíkur leitar að styrktaraðilum til snjóframleiðslu
Skíðafélag Dalvíkur hefur óskað eftir styrktaraðilum til að geta haldið úti snjóframleiðslu í vetur en félagið er búið með fjármagnið sem ætlað var til framleiðslu í vetur.
Mjög snjólétt hefur verið í vetur á svæðinu. Hver sólahringur í snjóframleiðslu kostar 250.000 kr. Skíðafélagið hefur því leitað til fyrirtækja og styrktaraðila.
Hægt er að leggja inn á reikning félagsins, kt. 490381-0319 nr. 0177-26-000451 og veitir Hörður nánari upplýsingar á hordur@skidalvik.is eða í 8201658.
Steypustöð Dalvíkur, Taxi70, GS-frakt og fleiri ætla styrkja Skíðafélagið.
Einnig er hægt að kaupa vetrarkort til að styrkja félagið.
