Skólahald í Dalvíkurskóla óbreytt áfram
Skólahald í Dalvíkurskóla verður með óbreyttu sniði í næstu viku. Nemendur mæta kl. 8:00 og hætta kl. 12:00. Frá þessu var fyrst greint á vef Dalvíkurskóla.
Eins og staðan er í dag er ekki hægt að halda úti fullum skóladegi með tilliti til sóttvarna og þrifa á milli hópa.
Stjórnendur skólans eru að leita leiða til þess að kenna megi samkvæmt stundaskrá og vonandi finnast lausnir á því.