dalvíkurbyggð

Skólasetning 22. ágúst í Dalvíkurskóla

Kennarar í Dalvíkurskóla eru að hefja undirbúning kennslu í vetur og verða á námskeiðisdögum dagana 11.-12. ágúst. Undirbúningsvika verður dagana 15.-19. ágúst fyrir kennara Dalvíkurskóla samkvæmt skóladagatali 2022-23.

Skólasetning nemenda verður 22. ágúst í Dalvíkurskóla. Útivistardagur er skráður 25. ágúst í skólanum. Fyrsti skipulagsdagur vetrarins verður 23. september.