dalvíkurbyggð

Slökkviliðsstjórar á Norðurlandi vara við sinuhættu

Slökkviliðsstjórar á Norðurlandi biðla til fólks að fara afar varlega með skotelda og opinn eld í dag, 31. desember. Afar þurrt er í veðri, gróður á svæðinu er mjög þurr og því hætta á að ef eldur kemst í sinu getur að breiðst hratt út.
Fólk er beðið um að kveikja ekki eld nærri sinu, kjarri og háu grasi og ekki vera með flugelda þar sem hætta er á að glóð úr þeim geti komið af stað sinubruna.