dalvíkurbyggð

Sundlaugin á Dalvík lokar í tvo daga vegna viðhalds

Sundlaugin á Dalvík verður lokuð mánudaginn 25. og þriðjudaginn 26. september vegna þrifa og viðhalds á öryggisbúnaði.
Líkamsræktin verður opin samkvæmt venju og tímar í tímatöflu munu einnig fara fram.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar.