dalvíkurbyggðFjallabyggðNorðurland

Tæknileg vandamál í samræmdum prófum og þeim frestað

Í samræmdu könnunarprófi í íslensku í 9. bekk sem lagt var fyrir í morgun komu upp tæknileg vandamál í prófakerfi. Vandinn lýsti sér í því að margir nemendur áttu erfitt með að komast inn í prófin eða duttu út úr kerfinu áður en þeir höfðu lokið próftöku. Samkvæmt fyrstu greiningu hafa um 3.500 nemendur af um 4.200 lokið prófinu en ljóst er að hluti nemenda tók prófið við ófullnægjandi aðstæður.
Menntamálastofnun ber ábyrgð á framkvæmd samræmdra könnunarprófa í grunnskólum og harmar þau vandamál sem komu upp við fyrirlögn þeirra. Stofnunin er nú að greina stöðuna með þjónustuaðila prófakerfisins og vinna að viðeigandi úrlausn. Þar sem ekki hefur fengist fullnægjandi lausn á þeim vanda sem upp kom í morgun var nauðsynlegt að endurskoða fyrirlögn prófanna.
Að höfðu samráði við mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur verið ákveðið að fresta samræmdum könnunarprófum í stærðfræði og ensku í þessari viku. Skólum er gefinn kostur á að leggja öll þrjú samræmdu könnunarprófin fyrir á tveggja vikna tímabili frá og með næsta mánudegi. Þannig hafi skólar val um hvaða próf þeir leggja fyrir og hvenær á tímabilinu 15.-26. mars. Allir nemendur innan sama skóla verða að taka sama próf á sama degi.