Taka við stærðfræðikennslu unglingastigs í Dalvíkurskóla
Dalvíkurskóli auglýsti eftir stærðfræðikennara á mið- og unglingastigi í mars mánuði. Alls bárust 5 umsóknir um starfið. Skólinn hefur gengið frá ráðningu stærðfræðikennara fyrir næsta skólaár. Ákveðið var í skólastjórn að leysa málið innanhúss og munu Katla Ketilsdóttir og Elmar Eiríksson taka við starfi Guðríðar Sveinsdóttur sem kennt hefur stærðfræði á unglingastigi undanfarin ár.