Tap á rekstri hjá Dalvík/Reyni en jákvætt eigið fé
Ársreikningur fyrir rekstrarárið 2024 hjá meistaraflokki karla hjá Dalvík/Reyni var kynntur og samþykktur á aðalfundi félagsins í síðustu viku. Tap var á rekstri félagsins upp á 2,6 mkr, þar af afskriftir upp á rúma milljón. Eigið fé meistaraflokks Dalvíkur/Reynis er jákvætt upp á 8 milljónir króna.
Rekstrarárið 2024 kom vel út hjá meistaraflokki kvenna þeirri nýstofnuðu deild og mikill kraftur er í starfinu.
Nú stendur yfir vinna við að tryggja rekstrargrundvöll deildarinnar til næstu ára.
